Prófíll

  • Nafn: Bára Másdóttir
  • Netfang: snjall@hotmail.com
  • Símanúmer: 8666507

Auglýsing

Speki dagsins

"There comes a point in your life when you realize who matters, who never did, who won't anymore...and who always will. So, don't worry about people from your past, there's a reason why they didn't make it to your future."

Leikur dagsins

My heart is beating like a Jungle drum

22. nóvember 2008 klukkan 19:57
ra dúnka dúnka dúnka domm eða ronka donka domm eða vatt ever allavegana crazy grípandi lag!!

Annars er ég með annað lag á heilanum og búin að vera með síðan á fimmtudaginn og sama hvað ég hlusta á eða reyni að gera alltaf ómar þetta í hausnum á mér.

Dömur mínar og Herrar, ég býð upp á mikið stemmingslag með þeim KK og Magga Eiríks af þeim snilldar disk. Fleiri Ferðalög, ekkert annað en BJÖSSI Á MJÓLKURBÍLNUM

Hver ekur eins og ljón

með aðra hönd á stýri?

Bjössi á mjólkurbílnum,

Bjössi á mjólkurbílnum.

Hver stígur bensínið

í botn á fyrsta gíri?

Bjössi á mjólkurbílnum,

hann Bjössi kvennagull.

  

Við brúsapallinn bíður hans mær,

Hæ, Bjössi keyptirðu þetta í gær?

Og Bjössi hlær, ertu öldungis ær,

alveg gleymdi’ ég því.

Þér fer svo vel að vera svona’ æst

æ, vertu nú stillt ég man þetta næst.

Einn góðan koss, svo getum við sæst á ný.

Hann Bjössi kann á bil og svanna tökin.

Við brúsapallinn fyrirgefst mörg sökin.

 

Hver ekur eins og ljón ...



Já komið ágætt af þessu indælislagi sem er alveg að valda því að ég er að missa vitið og mátti ég ekkert endilega við því kannski hehe dæmi hver fyrir sig.

Það er snjór úti, nei það er rigning, nei það er slydda nei það var farið að snjóa já það er hálka, nei það er farið að þýða, já það er slabb nei vegurinn er auður nei það er skafl já þetta er ekkert djók, þetta vedur er ekki að gera ákveðið sig hvernig það ætlar að vera, fokking sjitt.


Ég á alltof mikið af hestum, hvað á ég að gera við alla þessa hesta, einn tveir þrír fjórir fimm sex sjö átta níu og tíu eða ellefu þori ekki að telja hærraInnocent

Þetta er nýjasta eignin, Sveifla frá Álfhólum




Er búin að kveikja á seríu í glugganum og svona glærum ljóspíramída, sætt.

Skar mig í puttann í dag og hélt mér myndi blæða út, án djóks mér er ennþá illt í puttanum og þetta er bara smá skráma.

Langar í bjór.

Bless

Thule og saltstangir

31. október 2008 klukkan 22:47
sit hérna í makindum mínum með stórhuga hugmndir, drekk ískaldan bjór og japla á saltstöngum.

Framundan er æsispennandi föstudagskvöld, hvaða mynd verður fyrir valinu, sæll hvar endar þetta.

Þetta blogg er einungis sett fram til að fullnægja þörfum dyggum lesendum þess sem eru heilir 3 talsins. Vona að þetta sefi ró ykkar og geri ykkur kleift að halda áfram daglegu lífi og að þið náið nætursvefni á ný.

Já hvað dettur manni ekki í hug.

Ekkert nýtt og ekkert að frétta.

Það er ekki kreppa í truntubransanum allavega ekki sem hefur litið dagsins ljós enn sem komið er.

Já eins og áður kom fram lítið merkilegt um að vera, bara verið að tryppast og hestast svona þess á milli sem maður er ekki í vinnunni og svona.

Tamningar ganga ágætlega, set því til stuðnings mynd af Glanna Glæp, hann var ekki með allar tölur réttar í litalottóinu greyjið en ágætur þar fyrir utan.


Glanni



Tók myndina á síma svo hún er ekkert meiriháttar, vill svo skemmtilega til að ég er að hlaða myndavélina eftir langan dvala og aldrei að vita nema ég smelli af nokkrum betri myndum og skelli inn svona til þess eins  að gleðja ykkur, hver veit.,

Er svo að fara í nudd í fyrramálið þannig ef ekkert heyrist frá mér þá hef ég að öllum líkoindum verið borin út í hjólbörum og grafin einhversstaðar í vegkanti, öss spennan eykst.

En já vona að þig eigið góða daga og ánægjulega helgi ég ætla að fara og reyna að njóta minnarCool

kvartaldarafmćli, kúlusúkk og kokteilar

25. september 2008 klukkan 21:00
Sæl og bless

Allt í þessari fyrirsögn búll nema stórafmælið. Je minn maður er bara orðinn formlega gamall held ég.

Var boðið í þetta líka fína afmælisboð á þriðjudaginn, já þá átti ég afmæli og já þetta var afmælisboðið mitt. Já eða mömmu hún hélt það.
Dró fram mannætupottinn og kokkaði ofan í hele familíen. Það var mjög gott. Svo var kaka, hún var líka góð. Fékk hana í nesti, var að klára hana áðan.

Ekkert svo sem títt eða frásögufærandi, eða jú ég fékk mér svona andlitsbók áðan, já svaka merkilegt fyrirbæri, kann ekkert á þetta það eru bara allir með svona eða að tala um þetta þannig ég bara varð að tjekka á þessu.

Á ennþá engan bíl, það er ekki nógu gott en það hlýtur nú að rætast úr því.

Það er búið að vera brjálæðislega leiðinlegt veður undanfarið en í örskamma stund í gær og aðeins lengri í dag stytti upp og ég get svo svarið það það sást í heiðan himinn. Nei ég er ekki að djóka.

Það er ball um helgina. SSSól og Reiðmenn Vindanna, í fyrsta og eina sinn segja þeir strákarnir í útvarpinu. Það væri nú gaman að sjá herlegheitin. Hehehe það væri þá ekki að maður færi á ball kominn svona á gamals aldur, ég ætti ekki annað eftir.

Ég er viss um að þurrkarinn er enn lengur en hann virkilega er þegar maður er að bíða eftir honum.

Já heyrumst eða hittumst á facebook hehe ég hefði nú gaman af því Hlæjandi

Skemmtilegt er hugarfar...

09. september 2008 klukkan 22:34
Þessa setningu lærði ég í útlandinu og þetta er eitthvað sem allir ættu að tileinka sér.

Ferðin gekk vonum framar og var þrælskemmtileg. Mikið skoðað og heilmikið gert.

Shoppað og shoppað og ekkert stoppað á tímabili. Held það sé best að henda bara inn nokkrum myndum :)


Tekið var á móti okkur á stórum Ford 350 pickup. Eini sinnar tegundar í Köben og í honum vorum við ferjaðar í íbúðina sem var við Islandsbryggju. Þar beið Ari frændi öllum að óvörum og hafði nýlokið við að þrífa íbúðina. Gaman að því, veit ekki hvað það eru mörg ár síðan við höfum sést Brosandi


Farið var í sightseeing í tveggja hæða bus og líka í bátasiglingu.


VIð skoðuðum meða annars höllina og þar eignuðums við Andrea svona vin, hvernig áttum við að vita að það mátti ekki setjast á tröppurnar, en hann allavega hreyfði sig og talaði þó hann reyndar rauk í áttina að okkur gargandi heheSvalur


Skoðuðum líka Den Lille Havfrue, rosa sæt og rosa traffík þar.

Það var að sjálfsögðu farið á Strikið, oftar ein einu sinni og oftar en tvisvar, hér var amma að máta pels í einni ferðinni, hann kostaði litlar 28 þúsund danskar, já sæll.


Það var einnig farið í Build a Bear. Þar býrðu til tinn eigin bangsa fra grunni, setur í hann hjarta og tilfinningar, byrð til fæðingarvottorð, klæðir hann og græjar og gerir. Hér eru þau Dennis og Emilía, veit ekki afhverju myndin er svona hefur eitthvað farið úrskeiðis á leiðinni.


Þegar það var búið að ganga alla uppgefna upp að öxlum eitt kvöldið var ákveðið, en meira svona í gríni samt, að kaupa svona hjólamann undir þetta þríeyki, það var ekkert smá fyndið, hjól með vagni og doddinn brunaði með þær upp strikið og hláturinn í ömmu ómaðu um hálfa kaupmannahöfn. Þær sögðust aldrei ætla í svona apparat aftur.


Svo kom Unnur man nú ekkert hvar inn á milli það var en það var tekið vel á móti henni af hennar Skíðaskálafólki, hehe taki það til sín sem eigaHlæjandi


Svo fórum við á Ísbarinn, það var mjög gaman, þó það hafi verið rándýrt inn og drykkirnir fokvondir en hann var svo elskulegur barþjónninn að smella mynd af okkur

Svo fórum við í tívolíið, tók ekkert af myndum þar var of upptekin við að þræða öll ljótu tækin en það var feikna fjör á okkur frænkunum, enda ekki von á öðru:)

Jæja svona var þetta í fljótu bragði sagt frá set kannski inn fleiri myndir seinna ef eg verð í stöði.

Réttir um helgina og allt að verða crazy, maður ætti kannski að fara að athuga hvort hrossin séu lifandi!

Köbenhavn her kommer vi!

01. september 2008 klukkan 21:59
Öss er hér í beinni frá Tjarnabyggðinni

Það er allt að verða crazy
  • Mússík í sturtunni
  • Myndavélin og ipodinn í hleðslu
  • Búið að dusta rykið af ferðatöskunni
  • Týna til helstu flíkur sem fá að fljóta með
  • Restin í þvottavélinni eða þurrkaranum
  • Ofninn heitur og liturinn kominn á augabrúnirnar
Jebb það er sem sagt allt í fúll svíng og alveg að detta í útlönd.

Vonandi fer þetta allt vel fram, kominn smá skjálfti í mann, spenningur og stress, spurning hvort það verður sprengdur upp öl á flugvellinum, ég hefði nú gaman af því.

Ætla í bankann á morgunn með allt klinkið mitt og meira til og kaupa gjaldeyri svo verður bara visa kortinu sveiflað ef maður sér eitthvað fallegt.

Stay tuned, kannski maður detti inn á netkaffi í köben þess á milli sem maður þræðir næturklúbbana með ömmu hehehe ekki svo sem mjög líklegt þannig sennilega verður það bara ferðafrásögn næst ef maður kemst lifandi frá þessu ævintýr.

Góða ferð, venlig hilsen, tusin tak, jeg skal ha en öl tak, öss þetta á bara eftir að fara vel Hlæjandi

Smá update ;)

19. ágúst 2008 klukkan 18:46
Jæja jæja látum hann hlægja eða hvernig sem þetta var nú.

Margt hefur á daga mína drifið síðan síðast. Humm veit svo sem ekki hvað ber hæst en skal nefna eitthvað.

Verslunarmannahelgin var fremur róleg, riðið út, farið á böll, útlaginn, drukkinn bjór og haft það gott og gaman. Þannig var það í grófum dráttum.

Síðan þá og þangað til nú er ekkert stórkostlegt sem hefur gerst, allavega getur varla verið mikið merkilegt fyrst ég hef ekki hent frá mér öllu, hlaupið að tölvunni og skellt því beint hér inn, úúú það hefði verið kúl.

En já drukkinn smá bjór, ekki búin að vera nógu dugleg að ríða út, fór með 2 3ja vetra hesta frá mér, Spræk og Glanna út í Fjall á föstudagskvöldið, það gekk eins og í sögu og þá er ég nú heldur að draga úr frásögninni!

En aðal kveikjan að þessu bloggi er nú ekki þetta bull, ég reyndar var búin að ákveða að reyna að taka dáldið til, allavega taka til í bílnum mínum er með nánast búslóð og fataskáp í honum og það er kannski kominn tími á að gera eitthvað í því, en fyrst þetta

Gullfiskurinn minn sem hlotið hafði nafngiftina Dúddi er látinn. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu um helgina sem leið.
Blessuð sé minning hans.

Hann reyndar framdi sjálfsmorð, lá á gólfinu þegar ég kom heim, hafði hoppað upp úr búrinu. Get mér þess til að hann hafi ætlað að fara að leita að mér, en held líka að vatnið hafi bara verið of hreint.

Jæja farið hefur fé betra, get þá hætt að hafa áhyggjur af því hvað ég á að gera við hann meðan ég bregð mér til útlanda með systrum, frænkum ömmum og mömmum, úff það verður gaman að sjá hvernig það ferðalag fer, hef ekki trú á því að það verði mikið fjör og glens og grín Hlæjandi

Sm

19. ágúst 2008 klukkan 18:34

Já komdu ţar

22. júlí 2008 klukkan 23:09
Jæja langt um liðið en kannski ekki svo mikið gerst?

Hvur veit, kannski eitthvað ýkt merkilegt en maður tekur ekki eftir eða finnst ekki einu sinni þess vert að minnast á það. Alveg ábyggilega er það þannig og maður hefur ekki grænan grun.

En svona það helsta, fór á landsmót, bæði að vinna og ekki vinna, það var gaman, sólbrann á trýninu og dó úr þreytu þegar ég kom heim á sunnudaginn.

Hélt gæðingakeppni Smára á laugardaginn síðasta, það gekk ótrúlega vel, hafðist allt á endanum með hjálp góðra mannaBrosandi

Var að koma heim, var í smá leiðangri með hestakerruna, alltaf fjör kringum hana, maður þarf stundum að vera ýkt sterkur til að lyfta henni upp á krókinn og alls ekki verra að fá aðstoð en ég leysti þetta nú snilldarlega núna þó ég segji sjálf frá, þegar ég tók hana aftan úr þá bara bakkaði ég henni ofaní laut og inn í runna og nú bara hlakkar mig til að setja hana aftan í næst, var að spá í að testa það svona upp á djókið en ákvað að sýna stillingu og ég hef þá eitthvað til að hlakka til næst!

Lítið annað sem er mér ofarlega í huga núna, jú er þvílíkt að bonda við gullfiskinn þessa dagana, já við erum alveg að verða vinir, get klappað honum og allt. Þó er ég ekki viss um að maður geri mikið svoleiðis við gullfiska, en þetta er allt pínu nýtt fyrir mér.

Já og Gutti greyjið strauk og eða týndist um helgina, hefur farið upp á fjall og svo þegar hann var á leið niður lenti hann í sjálfheldu inn í gili og átti voða mikið bágt og fékk að fara í bæjarferð með mömmu sinni, fékk að gista og allt og þvílíkt ánægður með lífiðSvalur

Og já ég fékk mér líka nýjan síma, já hinn dó, eða dó reyndar ekki það heyrðist ekkert í honum og var ekki hægt að tala í hann þannig hann var nú nánast sama og dáinn og nýji síminn er aðeins flottur, já hann er bleikur, alveg fyrir allan peninginn og ég var nú pínu feimin við hann fyrst en þetta er allt af koma og ég kann bara voðalega vel við hann.

Já er ég að hugsa um að láta þessari innihaldslausu færslu lokið og snúa mér að öðru svo ég bið ykkur vel að lifa og það myndi nú ekkert drepa þessar örfáu hræður sem líta hér inn að kommenta, allavega tek ég ekki mark á því fyrr en ég sé ykkur dauð í mogga.

AAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRGGGGGGGGGGGGGGGGGGG

01. júlí 2008 klukkan 00:21
Sjett var búin að skrifa ýkt mikið og skemmtilegt og sniðugt þó ég segji sjálf frá! og nenni ekki að byrja upp á nýtt núna!

Aðalatriðin
  • Brjálað að gera í vinnunni
  • Mamma afrekaði að fótbrotna
  • Burn orkudrykkur er verri heldur en Magic
  • Skipti um vatn í fiskabúrinu, það er vesen
  • Fór að ríða út áðan, frekar frískandi
  • Langar geðveikt mikið á landsmót
  • Síminn minn er að deyja held ég
  • Man ekki meir
Sjáum til hvenær maður verður í stuði til að blogga aftur, ekkert víst þessi pirringur sitji lengi í mér hehe, spennan eykst :)

Yfir og út


Gullfiskurinn minn er svona feiminn við mig eða meira jafnvel, finnst ég skrítin held ég, hehe vonandi verðum við einhverntíman vinir ég segji nú ekki annað!

Já aldrei ađ segja aldrei...

26. júní 2008 klukkan 00:02
Jæja þá hefst enn ein næturvaktin hjá okkur 69, með leðri skal land byggja...

Nei smá djók, smá tilvísun í hina æðislegu mynd Löggulíf er upphafið að enn einni tilraun minni til að blogga.

Ég hef gegnum mína stuttu bloggtíð verið einstaklega lélegur bloggari, en koma tímar koma ráð og batnandi fólki er best að lifa og því ætla ég að reyna allavega pínku pons að búlla eitthvað hér af og til og endranær.

Í dag var stór dagur í lífi mínu. Mikið þroskamerki og próf á allt sem ég hef lært í lífinu.
Ég fór og fjárfesti mér í fullfisk og öllu sem tilheyrir svoleiðis apparati. Já allt er einu sinni fyrst og mun ég helga líf mitt þessum litla hjálparvana fiski sem hvorki veit í þennan heiminn né hinn.

Næst á dagskrá er að kyngreina dýrið og í kjölfar þess nefna það og mun það reynast þrautin þyngri en trúi ég að við komumst klakklaust frá því verkefni.

Kransar og blóm afþakkaðir, þessari frumraun númer eitthvað nokkur til að blogga er hér með lokið og hefur gegnið nokkuð áfallalaust fyrir sig og aldrei að vita nema maður taki þessa iðju upp aftur.

Eitt að lokum, nafn síðunnar baramas, gaman að segja frá því, það er nafnið mitt eins og það kemur fyrir í tölvuheiminum þar sem ógerlegt er að framkvæma kommur og einnig er það og kannski verður einkennandi fyrir atburði síðunnar sem verða Bara Mas haha góð saga.

Klukkan

Könnun

Áfengi er af hinu illa en ölvun er góđ.

Leit

Innskráningar kubbur